Skila- og endurgreiðslustefna

Skila- og endurgreiðslustefna

Hjá Voffa viljum við að viðskiptavinir okkar séu ánægðir með vörurnar sínar. Ef þú ert ekki sátt/ur við pöntunina þína geturðu haft samband við okkur og við reynum að finna lausn.

Skilaréttur

Viðskiptavinir hafa 14 daga skilarétt frá móttöku vöru samkvæmt íslenskum lögum, að því gefnu að:
• Varan sé ónotuð
• Varan sé í upprunalegu ástandi
• Upprunalegar umbúðir fylgi með ef við á

Til að óska eftir skilum skal senda tölvupóst á:

hjalp@voffa.is

með pöntunarnúmeri og upplýsingum um vöruna.

Endurgreiðslur

Þegar vara hefur verið móttekin og yfirfarin mun Voffa vinna úr endurgreiðslu eins fljótt og auðið er. Endurgreiðsla fer venjulega fram með sama greiðslumáta og notaður var við kaup.

Sendingarkostnaður fæst almennt ekki endurgreiddur nema um gallaða eða ranga vöru sé að ræða.

Gallaðar eða rangar vörur

Ef vara kemur gölluð eða röng biðjum við þig að hafa samband eins fljótt og mögulegt er svo við getum leyst málið.

Undanþágur

Voffa áskilur sér rétt til að hafna skilum ef:
• Varan hefur verið notuð
• Varan er skemmd af völdum kaupanda
• Skilyrði skilaréttar eru ekki uppfyllt

Hafa Samband

Við reynum alltaf að vera eins sanngjörn og hjálpleg þegar kemur að skilum og endurgreiðslum til að veita kúnnum okkar þæginlega þjónustu. Ef eitthvað kemur uppá hvetjum við þig til að hafa samband við okkur og við reynum okkar besta til að finna góða lausn.